Við eru að leita að frábærum einstaklingum til að hjálpa okkur að koma Wolt af stað á Íslandi. Þjónustufulltrúar eru hluti af þjónustuteyminu okkar sem er staðsett í miðborg Reykjavíkur.
Nýturðu þess að bjóða uppá frábæra þjónustu? Áttu auðvelt með að vinna undir álagi og með drifkraft í að koma hlutunum í verk? Ertu hugmyndaríkt og skipulagt? Finnst þér gaman að leysa vandamál í fjölbreyttu umhverfi? Ef svarið er já þá viljum við endilega heyra í þér!
Um starfið
Sem þjónustufulltrúi ferðu sífellt fram úr væntingum viðskiptavina okkar og samstarfsaðila. Þjónustuverið okkar endurspeglar hvað skiptir okkur máli og leitast ávallt við að byggja upp gott samband við viðskiptavini og samstarfsaðila og veita þeim frábæra þjónustu.
Helsta hlutverk þitt verður að hjálpa viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum á Íslandi, ásamt því að vinna með þjónustuteyminu okkar í Osló sem stundum sér um þjónustu í öðrum löndum.
- Svara fyrirspurnum viðskiptavina, veitingastaða og sendla, og taka frumkvæði að því að hafa samband við þau sem þurfa aðstoð
- Leysa vandamál viðskiptavina og sjá til þess að upplifun þeirra sé frábær í hvert skipti
- Aðstoða bæði veitingastaðina og sendlana sem við vinnum með og að hjálpa þeim að fá sem mest út úr samstarfinu við okkur
- Fylgjast með pantanaflæði í rauntíma og greiða fyrir afhendingu þeirra
- Koma auga á og leysa vandamál, eins og til dæmis veitingastaði með langan undirbúningstíma eða hátt hlutfall synjana, eða aðstoða ef þeir villast á leið sinni með sendingar
応募資格・条件
Meirihluti viðskiptavina okkar panta hjá okkur á kvöldin og um helgar, þar af leiðandi eru flestar vaktir á þessum tímum
Hæfniskröfur
- Íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Þjónustufulltrúar þurfa að geta átt skrifleg og munnleg samtöl á báðum tungumálum.
- Reynsla af þjónustustörfum. Starfið snýst ekki aðeins um að leysa vandamál heldur að bjóða upp á frábæra þjónustu í hvert skipti
- Aðlögunarhæfni, geta lært hrætt og unnið með marga bolta á lofti í einu
- Góð samskipti, sérstaklega undir álagi og þegar það er mikið að gera. Þú átt auðvelt með að aðlaga samskiptastíl þinn að mismunandi fólki og aðstæðum
- Tækniáhugi og geta til að vinna með með mörg samskiptakerfi, bæði með einbeitingu á heildarmyndina og smáatriðin
- Frumkvæði og þjónustulund ásamt samvinnuhæfni við samstarfsfólk með mismunandi bakgrunn og reynslu, bæði í þjónustustörfum og öðrum störfum, svo sem rekstri, markaðssetningu, verslun og veitingasölu
- Kostur að hafa reynslu af starfi í þjónustuveri og geta klárað mál hratt og örugglega
- Það hjálpar að hafa þekkingu á matarmenningu, umferðarmynstri og mismunandi hverfum á höfuðborgarsvæðinu
- Áhugi á að vinna í hröðu og orkumiklu starfsumhverfi
次のステップ
Ef þú hefur áhuga á að vinna í hröðu umhverfi með metnaðarfullu teymi þá viljum við endilega heyra frá þér!
Vinnutími
Við leitum að fólki í hlutastörf með að lágmarki 10 klukkustundir á viku. Vinnutíminn er breytilegur, en flestar vaktir eru á kvöldin og um helgar þegar það er mest að gera. Hins vegar er einnig möguleiki á dagvöktum þar sem við erum með opið frá 7 á morgnana alla virka daga. Þú munt vinna á skrifstofunni okkar í miðborg Reykjavíkur.
Athugið að við tökum eingöngu við starfsumsóknum í gegnum umsóknarformið, ekki í gegnum tölvupóst eða á staðnum.